Samtónn

Undanfarin ár hafa allir rétthafar innan íslensks tónlistarlífs í landinu hist reglubundið til viðræðna um sameignleg hagsmunamál.

Samvinna ofangreindra samtaka leiddi til þess að stofnuð voru þann 2. maí s.l. samtök allra rétthafa tónlistar í landinu. Hlutu samtökin nafnið Samtónn.

Tilgangur Samtóns er að vinna að sameiginlegum hagsmunum og styrkja stöðu höfunda, flytjenda, framleiðenda og annarra rétthafa að tónlist. Samtónn mun þannig koma fram sameiginlega fyrir hönd íslenskra rétthafa að tónlist. Samtónn mun vinna að vernd og varðveislu tónlistar og réttinda, sem henni tengjast, og leita tækifæra til að efla og skapa sóknarfæri til handa rétthöfum tónlistar innan lands sem utan.

Með stofnun Samtóns var stigið stórt skref í sameiginlegum réttindamálum með því að sameina krafta höfunda, flytjenda og framleiðenda. Tilgangurinn var að auka alla hagkvæmni varðandi kostnað í málefnum er varða sameiginlega snertifleti.  Í stað þess að þrír hópar væru að vinna að þrem mismunandi lausnum væri um eitt sameiginlegt verkefni að ræða. Sem dæmi um sameiginleg hagsmunamál sem Samtónn mun vinna að eru kynningarmál. Allir rétthafahóparnir sjá Internetið sem kynningarvettvang til framtíðar. Öll vinna við skoðun, viðhald og uppsetningu kynningarbanka er töluvert kostnaðarsöm. Í dag eru til hér á landi miklar upplýsingar á mismunandi stöðum um tónlistarrétthafa sem sameina þarf í einn sameignlegan gagnabanka. Stefnt er að uppsetningu einnar gáttar á Internetinu, þar sem hægt verður að sækja allar handbærar upplýsingar um íslenska tónlist og tónlistarrétthafa. Vinna þessi er þegar hafin.   


Samtónn | Eiðistorgi 17 | 170 Seltjarnarnesi | Sími: 561 8065 | Fax: 561 8066